Hjálparstarf kirkjunnar

Að útskýra Hjálparstarf kirkjunnar erlendis fyrir börnum:
Hvað myndum við gera ef við ætluðum að senda Siggu frænku á Ísafirði afmælispakka? Áður en við færum á pósthúsið yrðum við að skrifa utan á pakkann: Nafnið hennar Siggu og hvar hún heima. Svo má segja við barnið; “Þú ert t.d. Jóhann Gunnarsson og við eigum heima í Túngötu 5, á Egilsstöðum.” Ef nafnið og heimilisfang vantar á pakka sem kemur í pósthúsið þá lendir hann bara uppi á hillu á pósthúsinu og enginn veit hver á að fá hann! Sigga myndi bíða og bíða og aldrei kæmi neinn pakki. En hvað svo ef við sjáum einhvern í fréttunum sem hefur t.d. lent í jarðskjálfta og er búinn að týna pabba og mömmu og húsið hans er hrunið og hann vantar hjálp? Okkur langar mikið að hjálpa en við bara vitum ekki hvað barnið heitir. Og við vitum ekki hvar barnið á heima. Hvernig getum við þá sent því pakka? Hjálparstarf kirkjunnar veit hvernig á að finna fólk sem þarf á hjálp að halda. Hjálparstarf kirkjunnar veit hvernig á að finna heimilisfang hjá fólki sem myndi þurfa aðstoð. Þess vegna, – í staðinn fyrir að kaupa eitthvað og setja í pakka hérna heima, þá látum við Hjálparstarf kirkjunnar hafa peninga til kaupa fyrir það sem vantar. Hjálparstarfið sendir peningana út og þar er keypt eitthvað sem virkilega er þörf fyrir og fólkið fær þannig hjálpina sem það vantar.

 

 2006 104

Hér kemur fróðleikur um Hjálparstarfið

bjartsýni í kreppunni

 www.help.is