Það er gefandi og kærleiksríkt í kristnu uppeldi að búa til fallega og ljúfa stund með barninu sínu og fara með bæn. Bænin er samtal okkar við Guð og því mikilvægt að börnin fái tækifæri og reynslu í að tjá huga sinn, vonir og trú við Guð. Bænin tengir okkur saman sem fjölskyldu og kemur með ljós í líf okkar.